Total views: 1 time this weekRating: 7.45/10 [22 votes]
SVAVAR KNUTUR
- Spor Şarkı Sözleri / with translations
Spor lyrics English translation
Letra de Spor en traducción al Español
Paroles de Spor traduction Française
Letra de Spor tradução Portuguesa
Spor songtexte Deutsche Übersetzung
Testo di Spor tradotto in Italiano
Sporの歌詞 日本語訳
Spor şarkı sözleri Türkçe çeviri
Текст песни Spor на русском языке.
Tekst piosenki Spor po polsku
Spor 가사 한국어 번역
Spor-tekst Norsk oversettelse
Lirik Spor terjemahan bahasa Indonesia
Spor गाने के बोल का हिंदी अनुवाद
Spor songtekst Nederlandse vertaling
Στίχοι Spor Ελληνική μετάφραση
Spor-texten till Svensk översättning
เนื้อเพลง Spor คำแปลภาษาไทย
كلمات أغنية Spor مترجمة إلى اللغة العربية
Spor歌詞中文翻譯
Langt liggur slóð þín
Dóttir mín góð
Um fjöll og um dali
Fjarlægt land
Þar sem ég áður
Reikaði þjáður
Leitandi skjóls um eyðisand
Reikaði einn um eyðisand
Liggi þín leið um
Lágský á heiðum
Þokuna glæðir mánans skin
Spor mín í sandi
Sífelldur vandi
Láttu þau hverfa í hyldýpin
Hverfa í kolmyrk hugdjúpin
Finn þína eigin slóð
Fegurri verður leiðin þín
Far þína eigin slóð
Fetaðu ekki í förin mín
Forðastu, dóttir, fótspor mín
Stundum ekkert sést
Hvorki fjöll né firðir
Þá auðnin er alger
Allt er týnt
Ekki glata voninni
Barnið mitt
Höfuðið berðu
Hátt og þá sérðu
Allt sem var hulið þinni sýn
Þá sérhver hríð
Mun reynast þér blíð
Og áður en varir sólin skín
Senn mun hún verma sporin þín