play youtube video
Fenrisulfur
Skalmold
Fenrisulfur video

SKALMOLD


Fenrisulfur Lyrics

Sólin nú brennur af Surtarglóð
Sjóðandi hafið er rautt sem blóð
Höldum til sigurs á hófum átta
Hólminn er vígvöllur engra sátta
Dauðlegi maður, Þú dugar lítt
Deigt er þitt sverð móti Fenris skolti
Skepnan, hún grenjar , en orðin grýtt
Geta ei unnið á Hilmars stolti
Upp dreg ég sverðið, við æðum hjá
Úlfurinn skelfileg sjón að sjá
Ofsaleg bræðin í augum brennur
Beljandi sýnir hann klær og tennur
Goðin og Týr áður guldu dýrt
Gleipnir er vopn sem þú veldur ekki
Herópið skerandi, hátt og skýrt
Skal ég þér koma í bönd og hlekki
Þú ert máttlaus og magur
Þú ert ræfill og ragur
Nú ég dreg þig í dauðann
Ég mun binda þig blauðan
Þú munt brotna og bresta
Þig skal fjötra og festa
Framar aldrei munt anda
Eigin grimmd mun þér granda
Úlfur núna manni mætir
Miklar eru hættur heima
Regnið alla veröld vætir
Vopnast fjendur tveir
Sverðið mætir svörtum tönnum
Sveima yfir höfðum hrafnar
Óðinn hjálpar mætum mönnum
Máttlaus bænin deyr
Bardagamóður er bundið fæ
Blóðugan úlfinn og síðan næ
Gelgju að þræða í Gjöll og þrælinn
Þvita svo nota sem festarhælinn
Hetjan mig lagði og hefur enn
Hendur við úlfliði fastar báðar
Gætið að því, bæði goð og menn
Guðlegar orrustur eru nú háðar

Watch Skalmold Fenrisulfur video
Hottest Lyrics with Videos
8868e694f16fd05d84733e95e8ddf17f

check amazon for Fenrisulfur mp3 download
these lyrics are submitted by itunes3
Record Label(s): 2012 Napalm Records Handels Gmbh
Official lyrics by

Rate Fenrisulfur by Skalmold (current rating: 6)
12345678910
Meaning to "Fenrisulfur" song lyrics
captcha
Characters count : / 50
Latest Posts