play youtube video
Niflheimur
Skalmold
Niflheimur video

SKALMOLD


Niflheimur Lyrics

Sem vetur konungur í klakahelli
Út liðast Níðhöggur á Nábítsvelli
Hrímþursar fylgja með á svörtu svelli

Blikandi norðurljós á Niflheimsþaki
Þrúgandi þögnin heldur traustataki
Já, hér er ekkert nema kyrrð og klaki

Þennan stað hýsir þjáningin
Þursarnir vísast kaldir
Heimurinn frýs við himininn
Hér sefur ís um aldir

Þursarnir væla meðan vindar gnauða
Og rokið skilur eftir skika auða
Ísinn er sprunginn og hann spúir dauða

Sofðu. Sofðu

Í lofti þokkafullar þokuslæður
Hér er það ísinn sem að ríkjum ræður
Hér deyja mennirnir og Múspellsbræður

Sofðu. Sofðu

Nýr dagur rís
Hér sefur ís
Niflheimahliðin, þar fordæmdur fer
Dagur er risinn en dimmt hvar sem er
Dóttir mín litla, hvað gerði ég þér?

Þá gýs úr Hvergelmi með ógn og ótta
Og þar með leggja allir lífs á flótta
Það birtir ekki Nifls- á milli nótta

Sofðu. Sofðu

Þar svífur vætturin á vængjum þöndum
Við erum fönguð þar sem fátæk stöndum
Og bundin kyrfilega klakaböndum

Sofðu. Sofðu

Nýr dagur rís
Hér sefur ís

Léttir það varð þegar dóttir mín dó
Sofðu sem fastast og finndu þér ró
Faðmur minn verndar frá kulda og snjó

Watch Skalmold Niflheimur video
Hottest Lyrics with Videos
2c0118b0b871d57368945bbf3cdecbdf

check amazon for Niflheimur mp3 download
these lyrics are submitted by itunes3
Record Label(s): 2016 Napalm Records Handels GmbH
Official lyrics by

Rate Niflheimur by Skalmold (current rating: 6.67)
12345678910
Meaning to "Niflheimur" song lyrics
captcha
Characters count : / 50
Latest Posts